Fara í efni

Fjöldi erlendra ferðamanna í september

Talningar sept 2010
Talningar sept 2010

Alls fóru 40.863 erlendir gestir úr landi um Leifsstöð í septembermánuði nýliðnum. Um er að ræða 3,8% færri brottfarir erlendra gesta en í sama mánuði árið 2009 en einungis tvívegis áður hafa þó ferðamenn verið fleiri í september, eða árin 2008 og 2009.

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega fjölgun frá Norður Ameríku (+22,6%) og nokkra fjölgun frá löndum innan og utan Evrópu sem eru flokkuð saman undir ?Annað? (+7,1%). Bretum fækkar hins vegar umtalsvert eða um 22,6%, gestum frá Mið- og Suður Evrópu um 13,9% og Norðurlandabúum um 6,2%.

Frá áramótum hafa 385.100 erlendir gestir farið frá landinu eða 10.400 færri en á sama tímabili árið áður. Fækkunin nemur 2,6% milli ára. Fækkun hefur verið frá öllum mörkuðum nema Norður- Ameríku en þaðan hefur verið fjölgun upp á 13,5%.

Veruleg fjölgun er í brottförum Íslendinga í september en í ár fóru 27.808 Íslendingar frá landinu en í sama mánuði árinu áður fóru tæplega 22 þúsund úr landi. Fjölgunin nemur 28,2% milli ára. Frá áramótum hafa 24.500 fleiri Íslendingar farið utan í ár en á sama tímabili í fyrra.

September eftir þjóðernum Janúar-september eftir þjóðernum
  Breyting milli ára   Breyting milli ára
  2009 2010

 Fjöldi

 (%)

  2009 2010

 Fjöldi

 (%)

Bandaríkin 4.721 5.629 908 19,2 Bandaríkin 37.061   42.262 5.201 14,0
Bretland 4.845 3.749 -1.096 -22,6 Bretland 46.810   45.800 -1.010 -2,2
Danmörk 3.451 3.602 151 4,4 Danmörk 34.312   31.459 -2.853 -8,3
Finnland 1.077 1.004 -73 -6,8 Finnland 9.756     8.835 -921 -9,4
Frakkland 2.249 1.728 -521 -23,2 Frakkland 26.445   26.478 33 0,1
Holland 1.837 1.440 -397 -21,6 Holland 16.257   14.412 -1.845 -11,3
Ítalía 817 542 -275 -33,7 Ítalía 11.976     8.933 -3.043 -25,4
Japan 591 419 -172 -29,1 Japan 5.549     4.306 -1.243 -22,4
Kanada 1.484 1.981 497 33,5 Kanada 10.090   11.242 1.152 11,4
Kína 599 624 25