Fara í efni

Fjöldi erlendra ferðamanna í júní

Talningar jun 2010
Talningar jun 2010

Brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð í júní voru 53.500, eitt þúsund færri en í júní á síðasta ári. Fækkunin nemur tveimur prósentum milli ára. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu, 8.500 færri en árinu áður, fækkunin nemur tæpum fimm prósentum á milli ára.

Þróunin á milli einstakra markaðssvæða er nokkuð ólík í júní. Þannig er veruleg fjölgun frá Norður-Ameríku, eða rúm 21% á meðan fækkun er frá öðrum mörkuðum. Þó má sjá fjölgun hjá einstökum löndum, þannig fjölgar Þjóðverjum í júní um 13,3% á milli ára, Frökkum um 7,8% og Norðmönnum um 5,3%. Veruleg fækkun er hins vegar frá Hollandi, eða 38,8% og má m.a. rekja það til fjölda Hollendinga sem kom til landsins í tengslum við landsleik Íslands og Hollands í júní í fyrra í undankeppni HM í knattspyrnu.

Hvað varðar fjölgun frá Bandaríkjunum þá hefur orðið mest aukning á svokölluðum ?stop-over? farþegum sem dvelja hér á landi í 2-4 sólarhringa á leið sinni yfir hafið. Einnig hefur sætaframboð aukist til Bandaríkjanna, t.d. með flugi á vegum Iceland Express.

Sé litið á árið í heild eru niðurstöður áþekkar, þ.e. fjölgun frá Norður-Ameríku en fækkun víðast annars staðar. Góð fjölgun Breta fyrstu þrjá mánuði ársins skilar þó aukningu þaðan upp á 3,5% frá áramótum.

Íslendingar fara nú utan í auknum mæli. Þannig fóru 13,4% fleiri utan í júnímánuði í ár en í fyrra en frá áramótum hefur brottförum þeirra fjölgað um tæp 6%.

Framundan eru tveir stærstu ferðamánuðir ársins, júlí og ágúst. Í fyrra voru nærri 40% brottfara erlendra gesta í Leifsstöð í þessum mánuðum.

Nánari niðurstöður úr talningunum má sjá í töflunni hér að neðan.

 

Júní eftir þjóðernum Janúar-júní eftir þjóðernum
      Breyting milli ára         Breyting milli ára
  2009 2010 Fjöldi (%)     2009 2010 Fjöldi (%)
Bandaríkin 6.024 7.150 1.126 18,7   Bandaríkin 18.589 20.035 1.446 7,8
Bretland 4.377 4.042 -335 -7,7   Bretland 28.438 29.437 999 3,5
Danmörk 4.363 4.080 -283 -6,5   Danmörk 17.016 13.816 -3.200 -18,8
Finnland 1.617 1.449 -168 -10,4   Finnland 4.696 4.290 -406 -8,6
Frakkland 3.086 3.326 240 7,8   Frakkland 9.045 9.208 163 1,8
Holland 3.034 1.857 -1.177 -38,8   Holland 8.072 6.841 -1.231 -15,3
Ítalía 1.284 903 -381 -29,7   Ítalía 2.555 2.108 -447 -17,5
Japan 558 327 -231 -41,4   Japan 3.378 2.982 -396 -11,7
Kanada 1.606 2.095 489 30,4   Kanada