Fara í efni

Fjölda ferðatengdra verðlauna í myndaleik Ísland er með´etta!

Myndaleikur
Myndaleikur

Í vikunni hófst myndaleikur á vefsíðunni islandermedetta.is þar sem almenningur getur sent inn myndir af upplifun sinni af landinu og unnið fjölda skemmtilegra ferðatengdra vinninga. Í sumar hófst átak í sameiginlegri kynningu innlendrar ferðaþjónustu og vefsvæðið islandermedetta.is var opnað. Þar geta landsmenn fundið allra handa ævintýri og upplifanir sem eru í boði um allt land. Öllum býðst að deila reynslu sinni af landi og þjóð með skemmtilegum myndum og nú hafa allir sem eiga skemmtilega myndir í fórum sínum fengið enn betri ástæðu til þess að deila myndum á vefinn: Tækifærið á að vinna skemmtilega ferðatengda upplifun og vinningar eru fjölmargir. Nú þegar hefur fjölda skemmtilegra mynda verið hlaðið inn á vefinn og allir geta skoðað herlegheitin. í næstu viku verður tilkynnt um sigurvegara, en alls eru átta stórir ferðavinningar í pottinum auk fjölda aukavinninga.

Það eina sem þarf til að taka þátt er að hlaða inn mynd úr sumarfríinu, skemmtilegri vetraferð, nýlegri berjatínslu, eða hverju sem lýsir upplifun af landinu og þeim endalausu skemmtilegu möguleikum sem það hefur upp á að bjóða.  Keppendur þurfa að skýra innsendar myndir með lýsandi stikkorðum eða setningum. Þær myndir sem lýsa best, að mati dómnefndar, skemmtilegum augnablikum af innlendum upplifunum eru sigurstranglegastar. Myndirnar þurfa alls ekki að vera bundnar við frí eða sumarleyfi.

Sáraeinfalt að taka þátt í gegnum vef,  snjallsíma eða tölvupóst
Allir geta hlaðið inn myndum á vefsíðuna. Innskráðir notendur á Facebook geta hlaðið inn myndum en einnig er hægt að sækja myndaleiks síma-app fyrir Android og iPhone sem gera notendum kleift að setja inn myndir á vefinn. Instagram og twitter-notendur geta sent inn myndir sjálfkrafa með því að merkja þær #islandermedetta. Fyrir þá sem hafa ekki aðgang að framangreindu er einfalt að senda tölvupóst á netfangið leikur@islandermetta.is með mynd sem viðhengi og þá birtist hún sjálkfkrafa á vefnum. Nánar um vinninga og myndaleikinn á islandermedetta.is.

Vefurinn islandermedetta.is hittir í mark hjá ævintýraþyrstum Íslendingum
Landsmenn hafa þegar tekið vel við sér og heimsóknir á vefinn skipta tugþúsundum nú þegar. Athygli vekur að mælingar sína að notendur verja drjúgum tíma til þess að skoða vefinn og ljóst að það er einfalt að gleyma sér við að skoða þá fjölbreytilegu möguleika sem þar eru kynntir. Allir skráðir aðilar í ferðaþjónustu hafa aðgang að bakenda vefsins og geta hlaðið inn fjölda upplýsinga um þjónustu sína.

Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Þróunarstjóri markaðsmála Ferðamálastofu
sigrun@ferdamalastofa.is sími: 892 0675

www.islandermedetta.is