Fara í efni

Finnland og Rússland - Kaupstefna og sýning

Ferðakaustefna
Ferðakaustefna

Íslandsstofa skipuleggur ferðakaupstefnu í St. Pétursborg í Rússlandi þriðjudaginn 18. janúar 2011.  Er það í beinum tengslum við þátttöku í ferðasýningunni MATKA sem haldin er í Helsinki í Finnlandi dagana 20. til 23. janúar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur taki þátt í báðum viðburðunum.

Kaupstefnan er skipulögð í samvinnu við Airtoch í Finnlandi og Travel Trade Gasette – Russia og mun kynningarefni einnig verða notað á Luxurey Travel Mart sýningunni í Moskvu sem haldin verður 15. mars. Á kaupstefnuna verður boðið fulltrúum ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjanda auk fjölmiðla.  Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband sem allra fyrst og eigi síðar en 10. desember þar sem fjöldi er takmarkaður.

Nánari upplýsingar veita Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@islandsstofa.is  og  Sunna Þórðardóttir sunna@islandsstofa.is, sími 511 4000.

Nánari upplýsingar á ensku (PDF)

Meðfylgjandi mynd var tekin á MATKA fyrr á þessu ári.