Fara í efni

Fimm nýir hjá Iceland Express

Iceland Express lógó
Iceland Express lógó

Sumaráætlun Iceland Express tekur gildi í dag og þá bætast fimm nýir áfangastaðir við hina átta sem fyrir eru. Þetta eru: Basel, Billund, Eindhoven, Ósló og París.

Til Basel er logið vikulega en tvisvar eða þrisvar í viku til hinna. Aðrir áfangastaðir Iceland Express eru Alicante, Berlín, Frankfurt Hahn, Friedrichshafen, Gautaborg, Kaupmannahöfn, London og Stokkhólmur. Þá er einnig flogið beint frá Kaupmannahöfn til Egilsstaða og Akureyrar í sumar og hefst sú áætlun um næstu mánaðamót.