Fara í efni

Ferie for Alle 2012 - þátttökukönnun

Ísmoli
Ísmoli

Íslandsstofa kannar nú áhuga fyrirtækja á þátttöku í ferðasýningunni Ferie for Alle sem haldin verður dagana 24. - 26. febrúar 2012 í Herning í Danmörku.

Um er að ræða sýningu með áherslu á neytendur (B2C). Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar á Norðurlöndunum en hana sóttu um 66 þúsund gestir í ár.

Á sýningunni gefst fyrirtækjum í ferðaþjónustu tækifæri til að kynna sig, koma á viðskiptasamböndum og hitta neytendur. Sýningin hentar jafnframt fyrirtækjum sem stunda eða hafa áhuga á að hefja útflutning á vörum til Danmerkur og Svíþjóðar.

Áhugasamir eru hvattir til hafa samband við Sunnu Þórðardóttur hjá Íslandsstofu, sunna@islandsstofa.is eða í síma 511 4000 fyrir föstudaginn 2. desember.

Nánari upplýsingar á vef Ferie for Alle

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson - Arctic-Images.com