Fara í efni

Ferðamálastofa telur þá sem skoða gosið

Einstæð mynd Ragnars Th. Sigurðssonar tekin ofan í gosgíginn.
Einstæð mynd Ragnars Th. Sigurðssonar tekin ofan í gosgíginn.

Í gær 24. mars var settur upp teljari á vegum Ferðamálastofu á stikaðri gönguleið að eldgosinu í Geldingadölum. Teljarinn mælir gangandi umferð til og frá gosslóð og sendir frá sér uppfærslu einu sinni á sólarhring. Tölur unnar upp úr talningargögnum eru nú aðgengilegar í Mælaborði ferðaþjónustunnar.

Gögnin munu nýtast við skipulagningu og ákvarðanatöku Almannavarna og fleiri aðila sem koma að starfsemi á svæðinu, fyrir utan að vera til gagns og gamans fyrir almenning.

Uppsetning og viðhald teljara er í höndum telja.is og gagnavinnsla og sjónræn framsetning er unnin af Ferðamálastofu.

Sem fyrr segir á má nálgast gögnin í Mælaborði ferðaþjónustunnar og þar eru einnig tölulegar upplýsingar um fjölda gesta á yfir 20 öðrum vinsælum áfangastöðum sem taldir eru með sama hætti.