Fara í efni

Ferðaþjónustuvefir í úrslitum vefverðlaunanna

westfjords.is
Nýr vefur Markaðsstofu Vestfjarða www.westfjords.is komst í úrslit en hann er einn hinna nýju vefja marklasstofa landshlutanna sem farið hafa í loftið undanfarið og byggðir eru á sama grunni.

Íslensku vefverðlaunin voru afhent um helgina. Líkt og vanalega var ferðaþjónustan talsvert áberandi og margir ferðaþjónustutengdir vefir í úrslitum.

Um 150 vefir voru tilnefndir að þessu sinni en aðstandendur vefjanna og veffyrirtækin eru jafnan þeir sem tilnefna. Dómnefnd valdi síðan fimm vefi sem komust í úrslit í hverjum þeirra 14 flokka sem verðlaunin taka til. Ferðaþjónustutengda vefi sem komust í úrslit í hinum ýmsu flokkum má sjá hér að neðan.

Besti einstaklingsvefurin:
-iheartreykjavik.net

Besti non-profit vefurinn
-flytime.is
-vinirvatnajokuls.is

Besti opinberi vefurinn
-westfjords.is

Besti innri vefurinn
-mywork.icelandairgroup.is

Besti fyrirtækjavefurinn ( fleiri en 50 starfsmenn)
-icelandairhotels.is

Besti fyrirtækjavefurinn (færri en 50 starfsmenn)
-vita.is

Nánar á vef Samtaka vefiðnaðarins