Fara í efni

Ferðaþjónusta í tölum – Mánaðarleg útgáfa

Mynd: Ferðafólk á Þingvöllum ©Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ferðafólk á Þingvöllum ©Ragnar Th. Sigurðsson

Í dag kom út Ferðaþjónusta í tölum sem héðan í frá verður mánaðarleg útgáfa hjá Ferðamálastofu. Um er að ræða stutta samantekt með nýjustu talnaupplýsingum sem Ferðamálastofa safnar um ferðamenn og ferðaþjónustu ásamt talnagögnum frá Hagstofu Íslands. Áhersla er lögð á að skoða töluleg gögn ár aftur í tímann og þær breytingar sem hafa orðið.

Í þessari fyrstu útgáfu er m.a. að finna samantekt um:

  • fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll
  • gistinætur
  • tilgang Íslandsferðar, dvalarlengd og NPS skor
  • heimsóknir í einstaka landshluta og valda áfangastaði

Sem fyrr segir verður samantektin uppfærð mánaðarlega og er þetta er liður í aukinni áherslu Ferðamálastofu á rannsóknir, söfnun og miðlun talnaupplýsinga. Ensk útgáfa er einnig væntanleg.

Samantektin er unnin af Oddnýju Þóru Óladóttur hjá rannsókna- og tölfræðisviði Ferðamálastofu. Allar ábendingar um efni og efnistök eru vel þegnar og sendast á oddny@ferdamalastofa.is