Fara í efni

Ferðaþjónusta í tölum 2015

Ferðaþjónusta í tölum 2015 - forsíða

Árlegur talnabæklingur Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum 2015, er nú kominn út. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu.

Í bæklingnum eru teknar saman og settar fram myndrænt og í texta ýmsar tölulegar staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu, fjölda erlendra ferðamanna, gistinætur og ferðahegðun erlendra ferðamanna og Íslendinga. Helstu heimildir eru kannanir Ferðamálastofu meðal ferðamanna, talning ferðamanna í Leifsstöð og tölur frá Hagstofunni. Meðal þess sem fram kemur í bæklingnum er:

  • •Hlutur ferðaþjónustu í gjaldeyristekjum
  • •Útgjöld erlendra ferðamanna
  • •Kortavelta erlendra ferðamanna
  • •Fjöldi ferðamanna og skipafarþega
  • •Ferðamenn eftir þjóðerni, mánuðum og árstíðum
  • •Gistirými eftir landshlutum
  • •Nýting á gistirými
  • •Gistinætur erlendra ferðamanna og Íslendinga
  • •Helstu niðurstöður úr síðustu könnun meðal erlendra ferðamanna
  • •Ferðalög Íslendinga innanlands og utan, ferðahegðun innanlands og áform um ferðalög

Ritið í heild er aðgengilegt hér að neðan í PDF-formi. Ensk útgáfa er væntanleg á næstu dögum.