Fara í efni

Ferðasýningin í Fífunni hefst í dag

Ferðasýnig 2007
Ferðasýnig 2007

Ferðasýningin 2007, Golf 2007 og Sumar 2007 hefjast í dag í Fífunni í Kópavogi og standa alla helgina. Til samans er þetta ein stærsta sýning sem haldin hefur verið tengd ferða- og golfgeiranum.

Alda Þrastardóttir og Elín Svava Ingvarsdóttir í bás Ferðamálastofu.

Á um 9000 m2 svæði er að finna úrval fyrirtækja sem tengjast sumrinu, ferðalögum og golfíþróttinni en í heildina taka um 300 aðilar sem þátt í sýningunni. Ferðamálastofa er með bás á sýningunni og kynnir þar starfsemi sína. Opið er frá kl. 16 til kl. 20 í dag og kl. 11-18 laugardag og sunnudag.

Keppnir, fyrirlestrar og áhugaverðar uppákomur
Má þar nefna Hönnunarkeppni og er þemað umhverfislistaverk og keppnin um Blómaskreytir 2007. Valinn verður Ferðafrömuður ársins 2007 og á svæði Ferðamálasamtakanna verður landsleikur þar sem yfir 100 vinningar verða dregnir út.

Fjöldi annarra viðburða verður einnig á svæðinu, m.a. kennsla í country-dansi, fjöldi tónlistarmanna frá öllum landshlutum mun koma og skemmta gestum sýningarinnar ogf á útisvæði verða hestateymingar í boði fyrir börn.

Í Smáraskóla, sem er við Fífuna, verður haldin fyrirlestrarsyrpa á vegum GSÍ um golf- og ferðalög innanlands, skemmtilegir golfleikir verða í  boði fyrir alla fjölskylduna en einnig mun heimsmeistarinn í Masters Trick Shot Show 2006, Peter Jöhncke skemmta gestum með ótrúlegri leikni og tilþrifum. Þá mun landsliðið í golfi koma í heimsókn á golfsvæðið og haldin verður ráðstefna um golf og ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar: www.islandsmot.is og www.rit.is