Fara í efni

Ferðasýning í Noregi - janúar 2011

Noregur
Noregur

Íslandsstofa kannar nú áhuga fyrirtækja í ferðaþjónustu á ferðasýningunni Reiseliv sem fram fer í Lillestrom í Noregi dagana 13.-16.janúar 2011. Sýningin er haldin á hverju ári og er stærsta ferðasýningin á norska markaðnum; á síðasta ári sóttu hana um 33 þúsund manns, þar af 4.300 aðilar frá ferðaþjónustufyrirtækjum.

Reiseliv býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu upp á gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskiptasamböndum. Sýningin er tvískipt; fyrri hluti hennar, 13.-14. janúar, er helgaður B2B en 15.-16. janúar er sýningin opin almenningi.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Sunnu Þórðardóttur hjá Íslandsstofu fyrir 26. október nk., sunna@islandsstofa.is