Fara í efni

Ferðaskrifstofuleyfi tryggir hagsmuni neytenda

Ferðaskrifstofuleyfi tryggir hagsmuni neytenda

 

Ferðamálastofa vill vekja athygli á að sala pakkaferða (alferða) er leyfisskyld og beinir því til fólks að kaupa pakkaferðir af handhöfum ferðaskrifstofuleyfa. Aðeins þeir mega selja slíkar ferðir til almennings.

Hagsmunir neytenda tryggðir

Ferðaskrifstofum ber skylda til að hafa sérstaka tryggingu komi til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar. Kaupendur pakkaferða eiga þá rétt á endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar sem greidd hefur verið vegna pakkaferðar ef hún er ófarin, til heimflutnings úr ferð, sé hún hafin, eða gera viðskiptavinum kleift að ljúka ferð í samræmi við upphaflega áætlun.

Varist leyfislausa aðila

Ýmis konar framboð af pakkaferðum t.d. fótbolta- og lífsstílsferðum má finna á samskiptamiðlunum þar sem í boði er flug, gisting og miðar á leiki eða heilsutengda þjónustu. Við skoðun Ferðamálastofu hefur komið í ljós að margir þeirra sem bjóða slíkar ferðir til sölu eru án leyfis og því er um ólöglega starfsemi að ræða.

Listi yfir leyfishafa

Á vef Ferðamálastofu má finna lista yfir útgefin ferðaskrifstofuleyfi. Ferðamálastofa hvetur þá sem hyggja á kaup á pakkaferðum að ganga úr skugga um að þær ferðaskrifstofur sem þeir versla við hafi ofangreinda tryggingu og fái staðfestingu á að trygging sé nægjanleg komi til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar.

Frekari upplýsingar um starfsemi ferðaskrifstofa má nálgast undir liðnum Leyfi og löggjöf hér á vefnum.