Fara í efni

Ferðaskrifstofuleyfi Hispana Tours ehf. er fellt úr gildi

Ferðaskrifstofuleyfi Hispana Tours ehf. er fellt úr gildi

Ferðamálastofa hefur fellt niður ferðaskrifstofuleyfi Hispana Tours ehf., nr. 2024-001, kt. Kt. 411223-0350, frá og með 10. apríl 2026 þar sem félagið var lýst gjaldþrota þann 19. mars sl.

Félagið hefur því ekki lengur heimild til að setja saman, bjóða fram eða selja pakkaferðir eða að milligangast sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni.

Ferðatryggingasjóður endurgreiðir ferðamanni þær greiðslur sem hann hefur innt af hendi vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar sem ekki er framkvæmd í samræmi við samning vegna ógjaldfærni ferðaskrifstofu.

Frestur til að senda kröfu í Ferðatryggingasjóð er til og með 15. júní 2026. Krafa þarf að berast innan kröfulýsingarfrests. Kröfur sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar til greina. Kröfur eru sendar í gegnum vefgátt á island.is.

Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna,
svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu.