Fara í efni

Ferðamálaþing 2010 á Hilton Reykjavík Nordica - áhrif eldgossins

Gos fimmv
Gos fimmv

Þriðjudaginn 4. maí kl. 13-17 gengst Ferðamálastofa í samvinnu við iðnaðarráðuneytið fyrir ferðamálaþingi á Hilton Reykjavík Nordica. Ákveðið var að breyta áður ákveðinni dagskrá þingsins og helga það þeim atburðum sem hæst hafa borið síðustu daga, það er eldgosinu í Eyjafjallajökli og áhrifum þess á ferðaþjónustuna.

Yfirskriftin er: Íslensk náttúra ? afl ferðaþjónustunnar og áskorun.

Dagskrá:

13:00 Setning -  Katrín Júlíusdóttir, ferða- og iðnaðarmálaráðherra
13:15 Tourism means globalization ? natural disasters  are global by nature - Norbert Pfefferlein, professor and president of TCME, a marketing and tourism research company.
13:35 Að móta umræðuna ? þankar um almannatengsl, Valþór Hlöðversson framkvæmdastjóri  Athygli ehf.
13:55 Mikilvægi markaðsaðgerða í kjölfar óvæntra atburða ? Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og Matthías Imsland forstjóri Iceland Express.
14:20 Góðir gestir, hvað má bjóða ykkur? - Gestgjafahlutverkið á umbrotatímum - Þórólfur Árnason, stjórnarformaður ISAVIA.
14:40 Kaffi 
15:00 Hvernig bregðast skal við í neyð og tryggja áframhaldandi rekstur- Leó Sigurðsson öryggis- heilsu- og umhverfisstjóri Actavis á Íslandi.
15:20 Eldgos á Suðurlandi ? orðspor og öryggi?  ? Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
15:30 Má bjóða þér gos? Eldfjöll sem aðdráttarafl í ferðamennsku - Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur
15:50 Samantekt ? Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
16:00 Setið fyrir svörum 
Katrín Júlíusdóttir ráðherra ferðamála, Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri,  Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Helgi Már Björgvinsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og Matthías Imsland forstjóri Iceland Express
16:30 Opnun og kynning á endurbættum landkynningarvef Ferðamálastofu
16:45 Veitingar í þinglok
Fundarstjóri  Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður