Fara í efni

Ferðamálastofa tekin til starfa

Lógó-ferðamálastofa
Lógó-ferðamálastofa

Ferðamálastofa tekur samkvæmt lögunum við öllum skuldbindingum og verkefnum skrifstofu Ferðamálaráðs. Þannig að engin núverandi verkefni falla niður eða eru færð annað. Ferðamálastofa mun því áfram sinna þeim verkefnum sem  skrifstofur Ferðamálaráðs hafa sinnt gagnvart stjórnvöldum, greininni og innlendum og erlendum ferðamönnum.

Veigamiklir nýir málaflokkar bætast einnig við þau verkefni sem fyrir eru. Þar ber hæst leyfismál vegna ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og fleiri svo og öll stjórnsýsla því tengd. Þá mun Ferðamálastofa  samkvæmt nýju lögunum sinna skráningu bókunarmiðstöðva og upplýsingamiðstöðva, sem verða nú skráningaskyldar í fyrsta sinn. Einnig  er Ferðamálastofu falið með nýju lögunum það nýja verkefni að sjá um framkvæmd markaðrar ferðamálastefnu.

Nánar