Fara í efni

Ferðamálastofa óskar eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna 2007

Horn
Horn

Ferðamálastofa hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2007. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar:
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitafélög.

Hér með er óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2007. Frekari upplýsingar veitir umhverfisfulltrúi stofnunarinnar, Valur Þór Hilmarsson í síma 464 9990.

Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600
Akureyri eða með tölvupósti á netfangið valur@icetourist.is fyrir 30.
október næstkomandi.