Fara í efni

Ferðamálastofa boðar til kynninga á VAKANUM

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Nýju gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu, sem ber heitið VAKINN, verður formlega ýtt úr vör í Sunnusal Radisson Blu Hótel Sögu þriðjudaginn 28 febrúar næstkomandi kl 14:30.

Í framhaldinu verða kynningarfundir haldnir víða um land.

Metnaðarfullt verkefni fyrir alla ferðaþjónustu
Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa um nokkurt skeið unnið að þróun metnaðarfulls gæðakerfis fyrir íslenska ferðaþjónustu og binda aðstandendur kerfisins  miklar vonir við að VAKINN muni efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja.

Unnið í náinni samvinnu
VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan ferðaþjónustunnar um þennan mikilvæga málaflokk.

Ávörp á fundinum á Hótel Sögu flytja:
Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
Oddný Harðardóttir, iðnaðarráðherra
Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Unnur Halldórsdóttir,  formaður Ferðamálasamtaka Íslands
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur

Heimasíða VAKANS, vakinn.is, verður opnuð á fundinum. Nánari upplýsingar um VAKANN

Kynningarfundir VAKANS:     
2. mars  Ísafjörður     
5. mars  Akureyri og Varmahlíð    
6. mars  Egilsstaðir     
7. mars  Höfn í Hornafirði og Kirkjubæjarklaustur 
13. mars Stykkishólmur     
14. mars Selfoss og Reykjavík    

Dagskrá kynningarfunda:
- Ávinningur af VAKANUM
- Umhverfiskerfi VAKANS
- Gerð öryggisáætlana
- Áhættumat í ferðaþjónustu
- Rekstur og stjórnun
- Stuðningur og fylgigögn VAKANS

Nánari upplýsingar um staðsetningu funda á hverjum stað koma síðar.

Tökum höndum saman og eflum gæði í íslenskri ferðaþjónustu!