Ferðamálaskýrsla OECD 2026: Ávinningur, seigla og sveigjanleiki
Nýverið kom út skýrsla á vegum OECD um ferðamál og inniheldur hún helstu tölfræði og lýsingu á tilhögun ferðamála í öllum OECD löndunum. Skýrslan nefnist OECD Tourism Trends & Policies 2026 og er gefin út annað hvert ár að jafnaði. Meðal efnis sem finna má í skýrslunni eru sérkaflar um hvert og eitt land, þar með talið Ísland.
Skýrslan er mikil að vöxtum og er hennar jafnan beðið með nokkurri eftirvæntingu en samanburðurinn sem hún býður upp á getur nýst með ýmsum hætti. Að því leyti eru kaflarnir um hvert og eitt land gagnlegastir.
Efling viðnámsþróttar með sjálfbærni að leiðarljósi
Í skýrslunni er lögð áhersla á þörfina fyrir sveigjanlega og samræmda stefnumótun til að beina ferðaþjónustunni í átt að samkeppnishæfni, viðnámsþoli og sjálfbærni að sjálfsögðu. Jafnframt eru þar birt gögn og rannsóknarniðurstöður um umfang, uppbyggingu og mikilvægi ferðaþjónustuhagkerfisins.
Í þemaköflum er fjallað um leiðir til að auka samfélagslegan ávinning af ferðaþjónustu og styrkja getu greinarinnar til að laga sig að öfgafullum veðuratburðum.
Sérkafli um Ísland
Hvert land á sem fyrr segir sinn kafla í skýrslunni og í vefútgáfu hennar er hægt að fara beint á kaflann um Ísland. Auk tölfræði og gunnupplýsinga um ferðaþjónustuna er í skýrslunni sagt frá ýmsu af því sem verið er að gera hér á landi á vegum stjórnvalda hvað varðar stefnumótun og skipulag greinarinnar.