Fara í efni

Ferðamálasamtök landshluta styrkt

Ferdatorg2002
Ferdatorg2002

Í gær afhenti Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, Ferðamálasamtökum Íslands formlega 9 milljóna króna styrk. Um er að ræða lið í markaðsátaki sem efnt var til í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum fyrir ári síðan.

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra hleypti markaðsátakinu Ísland - sækjum það heim formlega af stokkunum á Ferðatorgi 2002, sem haldið var í vor að tilstilli Ferðamálasamtaka Íslands og Ferðamálaráðs Íslands. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum þann 11. september höfðu fyrst í stað mikil áhrif á ferðaþjónustu um allan heim. Hratt var brugðist við breyttum aðstæðum íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfarið, er samgönguráðherra fékk samþykkta í ríkistjórn 150 milljóna króna fjárveitingu til að draga úr yfirvofandi samdrætti í ferðaþjónustunni.

Samkvæmt tillögu Magnúsar Oddssonar, ferðamálastjóra, sem falin var framkvæmd átaksins, var ákveðið að stórum hluta yrði varið í markaðssókn á erlendum vettvangi, aðallega í Bandaríkjunum og á okkar helstu markaðssvæðum í Evrópu. Auk þess var leitað samstarfs við nokkur íslensk fyrirtæki erlendis um kynningarstarf og voru viðtökur undantekningarlaust jákvæðar. Er það mat þeirra sem best til þekkja að umtalsverður árangur hafi náðst á síðustu mánuðum. Jafnframt ákvað samgönguráðherra að veita Ferðamálasamtökum Íslands og ferðamálasamtökum landshlutanna 9 milljóna króna styrk, er skiptist jafnt á milli samtakanna og var formlega gengið frá því í gær.

Myndatexti:  Varaformaður Ferðamálasamtaka Íslands, Ásmundur Gíslason, tók við styrkjunum fyrir þeirra hönd og afhenti samgönguráðherra mynd sem þakklætisvott. Um var að ræða innrammað plagat sem auglýsti Ferðatorg 2002 sl. vor. Með þeim á myndinni er Magnús Oddsson, ferðamálastjóri.