Fara í efni

Ferðamálasamtök Íslands boða til aðalfundar á Ísafirði

Hótel Ísafjörður
Hótel Ísafjörður

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands verður haldinn á Hótel Ísafirði föstudaginn 24. og laugardaginn 25. nóvember 2006. Að samtökunum standa átta landshlutasamtök og að þeim eiga aðild ferðaþjónustuaðilar og sveitarfélög á viðkomandi svæðum. Formaður samtakanna er Pétur Rafnsson.

Síðasti aðlfundur Ferðamálasamtaka Íslands var haldinn í Varmahlíð fyrir ári síðan og var hann að venju vel sóttur. Dagskrá fundarins nú verður auglýst síðar hér á vefnum og í fjölmiðlum. Fulltrúar eru beðnir að skrá sig tímanlega á fundinn í síma 898-6635. Bókun herbergja er á Hótel Ísafirði og einfaldast er að ganga frá því á heimasíðu hótelsins. www.hotelisafjordur.is