Fara í efni

Ferðamálaráðstefnan 2004 verður á Kirkjubæjarklaustri

Gistinætur á hótelum í ágúst 2004
Gistinætur á hótelum í ágúst 2004

Nú er komin dagsetning á hina árlegu ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs Íslands. Hún verður að þessu sinni haldin á Kirkjubæjarklaustri dagana 14.-15. október næstkomandi.

Leitast við að ræða það sem efst er á baugi
Á ferðamálaráðstefnum er kafað ofan í ýmis mál sem skipta miklu fyrir íslenska ferðaþjónustu og leitast við að ræða það sem efst er á baugi í umræðunni í það og það skiptið. Dagskráin verður nánar auglýst síðar en þess má þó geta undanfarin ár hafa umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs verið afhent í tengslum við ráðstefnuna.

Opin áhugafólki og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu
Ráðstefnan á Klaustri verður sú 34. í röðinni en síðasta ferðamálaráðstefnan var haldin í Mývatnssveit. Ráðstefnurnar eru jafnan fjölsóttar enda er hér kjörinn vettvangur fyrir ferðaþjónustuaðila til að hittast og stilla saman strengi sína. Ráðstefnan er opin áhugafólki og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu af öllu landinu og mikilvægi hennar fyrir ferðaþjónustuna lýsir sér á fleiri en einn hátt. Auk þess að taka fyrir tiltekin málefni er ekki síður mikilvægt að hafa þetta tækifæri til að stefna aðilum í ferðaþjónustu saman til skrafs og ráðagerða. Ráðstefnan er jafnan haldin utan suðvesturhornsins og hafa heimamenn í hvert sinn jafnframt getað notað tækifærið til að kynna svæði sitt.

Ýmis mál verið rædd
Á undangengnum ferðamálaráðstefnum hafa fjölmörg mál verið tekin til umræðu. Meginefnið síðast voru markaðsmálin en af öðrum umræðuefnum á síðustu árum má nefna skýrsluna "Auðlindin Ísland", menningartengda ferðaþjónustu, tækifæri landsbyggðar í ferðaþjónustu, rannsóknir, vöruþróun og arðsemi í ferðaþjónustu, gæðamál, ferðaþjónustu utan háannar, fjárfestingar í ferðaþjónustu og umhverfismál. Hvert umræðuefnið verður á Kirkjubæjarklaustri skýrist seinna í sumar.

Mynd fengin af vef Kirkjubæjarklausturs