Fara í efni

Ferðamálaráðstefnan 2003 verður í Mývatnssveit

Nú er komin dagsetning á hina árlegu ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs Íslands. Hún verður að þessu sinni haldin í Mývatnssveit þann 16. október næstkomandi.

Leitast við að ræða það sem efst er á baugi
Á ferðamálaráðstefnum er kafað ofan í ýmis mál sem skipta miklu fyrir íslenska ferðaþjónustu og leitast við að ræða það sem efst er á baugi í umræðunni í það og það skiptið. Dagskráin og nánari staðsetning verður nánar auglýst síðar en þess má þó geta undanfarin ár hafa umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs verið afhent í tengslum við ráðstefnuna.

Opin áhugafólki og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu
Ráðstefnan í Mývatnssveit verður sú 33. í röðinni en síðasta ferðamálaráðstefnan var haldin á Stykkishólmi 17. og 18. október síðastliðinn. Hún var jafnframt sú ein fjölmennasta sem haldin hefur verið til þessa en hana sóttu rúmlega 200 manns hvaðanæva af landinu. Má búast við að gestir verði ekki færri í ár enda er hér kjörinn vettvangur fyrir ferðaþjónustuaðila til að hittast og stilla saman strengi sína. Ráðstefnan er opin áhugafólki og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu af öllu landinu og mikilvægi hennar fyrir ferðaþjónustuna lýsir sér á fleiri en einn hátt. Auk þess að taka fyrir tiltekin málefni er ekki síður mikilvægt að hafa þetta tækifæri til að stefna aðilum í ferðaþjónustu saman til skrafs og ráðagerða. Ráðstefnan er jafnan haldin utan suðvesturhornsins og hafa heimamenn í hvert sinn jafnframt getað notað tækifærið til að kynna svæði sitt.

Ýmis mál verið rædd
Á undangengnum ferðamálaráðstefnum hafa fjölmörg mál verið tekin til umræðu. Meginefnið síðast var skýrslan "Auðlindin Ísland" og einnig voru málefni upplýsingamiðstöðva rædd. Af öðrum umræðuefnum á síðustu árum má nefna menningartengda ferðaþjónustu, tækifæri landsbyggðar í ferðaþjónustu, rannsóknir, vöruþróun og arðsemi í ferðaþjónustu, markaðsmál, gæðamál, ferðaþjónustu utan háannar, fárfestingar í ferðaþjónustu og umhverfismál. Hvert umræðuefnið verður í Mývatnssveit skýrist seinna í sumar.