Fara í efni

Ferðamálaráð býður til samstarfs um auglýsingar á íslenskri ferðaþjónustu

Ferðamálaráð Íslands hefur ákveðið að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs um gerð og birtingu auglýsinga sem hvetja landsmenn til ferðalaga innanlands. Um er að ræða hluta af kynningarherferðinni ?Ísland ? sækjum það heim? og er gert ráð fyrir að útlit og efnistök auglýsinga taki mið af því sem gert hefur verið til þessa.

Ferðamálaráð hyggst verja 12 milljónum króna til verkefnisins á tímabilinu 15. maí 2005 ?30. apríl 2006. Hér með er auglýst eftir samstarfsaðilum sem hafa áhuga á að leggja fram fé á móti Ferðamálaráði og auglýsa þjónustu sína á framangreindu tímabili. Skilyrði er að viðkomandi aðili sé starfandi í ferðaþjónustu og reiðubúinn að auglýsa í fjölmiðlum sem ná til allra landsmanna.

Skipt í 16 hluta

Fjármunum Ferðamálaráðs er skipt í 16 hluta; 8 að fjárhæð 1.000.000 krónur og 8 að fjárhæð 500.000 krónur. Lágmarksframlag þeirra sem vilja taka þátt er jafnhá upphæð í hverjum hluta. Hver aðili getur einungis boðið í einn hlut. Samstarfsaðilar verða valdir með hliðsjón af fjárframlögum og fyrirhugðum kynningarverkefnum hvers og eins. Sérstakt tillit verður tekið til verkefna sem höfða til ferðalaga utan háannar á landsvísu.

Að uppfylltum þessum skilyrðum verður að öðru jöfnu sá aðili sem leggur til hæst mótframlag á móti Ferðamálaráði valinn til samstarfs.

Tekið er við skriflegum umsóknum um samstarf til 30. apríl nk. á skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík á sértöku eyðublaði sem nálgast má hér á vefnum.


Sækja eyðublað

Auglýsing um samstarfið, prentvæn útgáfa

Eyðublaðið og auglýsingin eru á Adobe Acrobat formi (pdf-skrá) og til að opna það þarf forritið Acrobat Reader að vera uppsett á viðkomandi tölvu. Smelltu  hér og fylgdu leiðbeiningunum sem fylgja í kjölfarið ef þú ert ekki með Acrobat Reader.