Fara í efni

Ferðamálaráð býður til samstarfs um auglýsingar á íslenskri ferðaþjónustu

Ferðamálaráð Íslands hefur ákveðið að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs um gerð og birtingu auglýsinga sem hvetja landsmenn til ferðalaga innanlands. Um er að ræða hluta af kynningarherferðinni ?Ísland ? sækjum það heim? og er gert ráð fyrir að útlit og efnistök auglýsinga taki mið af því sem gert hefur verið til þessa.

Ferðamálaráð hyggst verja 15 milljónum króna til verkefnisins á tímabilinu 15. maí 2003 ?30. apríl 2004. Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum sem hafa áhuga á að leggja fram fé á móti Ferðamálaráði og auglýsa þjónustu sína á framangreindu tímabili. Skilyrði er að viðkomandi fyrirtæki sé starfandi í ferðaþjónustugeiranum og reiðubúið að auglýsa í fjölmiðlum sem ná til allra landsmanna.

Skipt í 20 hluta
Fjármunum Ferðamálaráðs er skipt í 20 hluta; 10 að fjárhæð ein milljón króna og 10 að fjárhæð 500.000 krónur. Lágmarksframlag þeirra sem vilja taka þátt er jafnhá upphæð í hverjum hluta. Hver aðili getur einungis boðið í einn hlut. Samstarfsaðilar verða valdir með hliðsjón af fjárframlögum og fyrirhugðum kynningarverkefnum hvers og eins. Sérstakt tillit verður tekið til verkefna sem höfða til ferðalaga utan háannar á landsvísu.

Að uppfylltum þessum skilyrðum verður að öðru jöfnu sá aðili sem leggur til hæst mótframlag á móti Ferðamálaráði valinn til samstarfs.

Tekið er við skriflegum umsóknum um samstarf til 30. apríl nk. á skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík á sértöku eyðublaði