Fara í efni

Ferðamálaráð auglýsir eftir samstarfsaðilum vegna auglýsingaátaks

Smakkadu
Smakkadu

Ferðamálaráð Íslands hefur ákveðið að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs um gerð og birtingu auglýsinga sem hvetja landsmenn til ferðalaga innanlands. Um er að ræða framhald af herferðinni "Ísland - sækjum það heim" og er gert ráð fyrir að útlit og efnistök auglýsinga taki mið af því sem gert hefur verið til þessa.

Ferðamálaráð hyggst verja tíu milljónum króna til verkefnisins á tímabilinu 1. september 2002 til 5. maí 2003. Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum sem hafa áhuga á að leggja fram fé á móti Ferðamálaráði og auglýsa þjónustu sína á framangreindu tímabili. Skilyrði er að viðkomandi fyrirtæki sé starfandi í ferðaþjónustugeiranum og reiðubúið að auglýsa í fjölmiðlum sem ná til allra landsmanna.

Skipt í 16 hluta
Fjármunum Ferðamálaráðs er skipt í 16 hluta, fjóra að fjárhæð ein milljón króna og tólf að fjárhæð 500.000 krónur. Lágmarksframlag þeirra sem vilja taka þátt er jafnhá upphæð í hverjum hluta. Hver aðili getur einungis boðið í einn hlut. Samstarfsaðilar verða valdir með hliðsjón af fjárframlögum og fyrirhugðum kynningarverkefnum hvers og eins.

Tekið er við skriflegum umsóknum um samstarf til 20. ágúst nk. á skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands, Strandgötu 29, 600 Akureyri