Fara í efni

Ferðamál á Íslandi – heildstætt grundvallarrit

Ferðamál á Íslandi - forsíðaÚt er komin hjá Forlaginu bókin "Ferðamál á Íslandi – heildstætt grundvallarrit". Höfundar eru Edward Hákon Huijbens og Gunnar Þór Jóhannesson.

"Ferðamál á Íslandi er fyrsta rit sinnar tegundar á íslensku; heildstætt grundvallarrit sem tekur á ferðamálum í víðu samhengi," segir m.a. í frétt frá útgefanda.

Skipt í þrjá hluta

Bókinni er skipt í þrjá meginhluta sem hver um sig endurspeglar einstök áhersluatriði sjálfbærrar þróunar; efnahag, umhverfi og samfélag. Í hluta I er farið yfir ferðamál í tengslum við hagkerfi, skipulag og stjórnsýslu. Í hluta II er ferðamálum og málefnum umhverfisins gerð skil og í hluta III er fjallað um ferðamál og samfélag og hvernig íslensk samtímamenning tvinnast saman við ferðamál.

Fyrir nám og störf

Ferðamál á Íslandi er ætluð þeim sem hyggja á nám í ferðamálafræði á háskólastigi og eru að mennta sig í ólíkum greinum ferðaþjónustu á ýmsum skólastigum en jafnframt þeim sem hafa atvinnu af ferðaþjónustu og vilja sjá störf sín og daglegar athafnir í stærra samhengi.

Um höfundana

Höfundarnir, Edward Hákon Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, og Gunnar Þór Jóhannesson, lektor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, hafa báðir sinnt rannsóknum á ferðamálum um árabil.

Bókina á má fá á vef Forlagsins í verslun Forlagsins á Fiskislóð 39 og í öllum bókaverslunum.