Fara í efni

Ferðakaupstefnan Hittumst 2013

© arctic-images.com
© arctic-images.com

Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins gangast fyrir ferðakaupstefnunni Hittumst 2013 föstudaginn 6. september frá kl. 10:00 til 18:00 á Grand Hotel í Reykjavík.

Fyrirkomulag og hádegisfyrirlestur

Fyrirkomulag kaupstefnunnar er þannig að frá kl. 10:00 til 12:00 er hún ætluð ferðaþjónum og öðrum hagaðilum í ferðaþjónustu að hittast og kynna innbyrðis vöru sína og þjónustu. Í hádeginu er í boði einstaklega áhugaverður fyrirlestur frá Visit Tromsö en frá kl. 14:00 til 18:00 verður kaupstefnan opnuð almenningi og gefst þátttakendum þá tækifæri til að kynna sig og starfssemi sína fyrir innlendum fyrirtækjum og stofnunum. Kaupstefnan verður sérstaklega markaðssett á fyrirtækjamarkað fyrir þennan hluta.

"Stjórn FSH hvetur alla félagsmenn til að leggja sitt af mörkum til að efla tengingu milli ferðaþjónustuaðila á höfuðborgarsvæðinu sem og landinu öllu. Þessvegna leggjum við áherslu á að Hittumst er fyrir alla fagaðila í ferðaþjónustu. Hittumst er einnig frábært tækifæri fyrir fyrirtæki og starfsmenn hinna ýmsu fyrirtækja að kynnast og þétta hópinn," segir í frétt.

Um kvöldið verður uppskeruhátíð Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins haldin þar sem boðið verður upp á veitingar og skemmtun fram eftir kvöldi.

Þátttökugjald er 10.000 kr. fyrir félaga í Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins en 25.000 kr. fyrir aðra. Innifalið í verði er aðstaða á Hittumst (borð, stólar, dúkar) og tveir miðar á uppskeruhátíðina. 

Nánari upplýsingar og skráning