Fara í efni

Ferðagjöf - Efni frá kynningarfundi

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Mikill áhugi var á kynningarfundi í morgun þar sem farið var yfir útfærslu á ferðagjöf stjórnvalda. Meginefnið var með hvaða hætti fyrirtæki skrá sig til að taka á móti gjöfinni og hvernig almenningur getur nýtt sér hana. Einnig var kynntur nýr ferdalag.is vefur og ný könnun um ferðaáform Íslendinga.

  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra ávarpaði fundinn og síðan tók Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri við, hvatti fyrirtæki til þátttöku og að taka vel á móti Íslendingum á ferðalagi í sumar.
  • Andri  Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Stafrænu Íslandi og Þórhildur Gunnarsdóttir, eigandi Parallel ráðgjafar,  kynntu Ferðagjöfina, smáforritið og þá hlið sem snýr að fyrirtækjunum.
  • Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri hjá Ferðamálastofu kynnti uppfærslu á Ferðalag.is og tengingu við Ferðagjöf.
  • Oddný Þóra Óladóttir, hjá rannsókna- og tölfræðisviði Ferðamálastofu kynnti niðurstöður úr nýrri könnun á vegum Ferðamálastofu um ferðaáform Íslendinga árið 2020.
  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar stýrði fundinum, sem var í beinu streymi á Facebook-síðu Ferðamálastofu. Þar má nú nálgast upptöku af fundinum