Fara í efni

Farþegar um Keflavíkurflugvöll í október

Flugstöð
Flugstöð

Rúmlega 154 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í októbermánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá ISAVIA. Þetta eru 22% fleiri farþegar en í október 2009.

Farþegum á leið til og frá landinu fjölgar um tæp 15% og farþegaum á leið til landsins um tæp 18%. Skiptifarþegum fjölgar um 10 þúsund í október, sem er 65% fjölgun á milli ára.

Frá áramótum hafa tæplega 1,6 milljónir farþegar farið um völlinn en til samanburðar þá voru þeir tæplega 1,5 milljónir á sama tímabili í fyrra, sem er 7,32% fjölgun, eins og sjá má í töflunni hér fyrir neðan. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir október, þar sem taldir eru allir sem fara úr landi um Leifsstöð. Í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur í ljós hlutfall erlendra gesta í þessum tölum.

  Okt.10. YTD Okt.09. YTD Mán. % breyting YTD % Breyting
Héðan:

61.367

636.988

53.610

632.855

14,47%

0,65%

Hingað:

62.385

651.418

52.978

633.498

17,76%

2,83%

Áfram:

3.658

19.105

3.225

40.878

13,43%

27.6-53,269%

Skipti.

27.063

272.732

17.058

165.278

58,65%

65,01%

 

154.473

1.580.234

126.871

1.472.509

21,76%

7,32%