Fara í efni

Farþegar um Keflavíkurflugvöll 2009

Flugstöð
Flugstöð

Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 1,7 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári. Þetta er um 16,7% fækkun á milli ára.

Alls voru farþegar 1.658.419 á árinu 2009, samanborið við 1.991.338 farþega árið 2008. Fækkun var í öllum mánuðum ársins að desember undanskyldum þegar farþegafjöldinn var nánast sá sami. Líkt og verið hefur aðra mánuði ársins má búast við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir desember en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá mun heildarfjöldi gesta til landsins í fyrra jafnframt liggja fyrir. Nánari skiptingu á farþegum um Keflavíkurflugvöll má sjá í meðfylgjandi töflu.

 

 

Des.09.

YTD

Des.08.

YTD

Mán. % breyting

YTD % Breyting

Héðan:

33.164

706.027

36.699

867.922

-9,63%

-18,65%

Hingað:

41.139

714.682

41.047

878.101

0,22%

-18,61%

Áfram:

3.276

47.020

4.581

39.090

-28,49%

20,29%

Skipti.

13.525

190.690

8.611

206.225

57,07%

-7,53%

 

91.104

1.658.419

90.938

1.991.338

0,18%

-16,72%