Fara í efni

Farfuglaheimilin taka þátt í Stund jarðar

Stund jarðar
Stund jarðar

Stund jarðar er viðburður sem fólk, fyrirtæki og sveitarfélög taka þátt í um allan heim. Verkefnið hófst í Ástralíu árið 2007. WWF (World Wildlife Fund) stendur á bakvið verkefnið sem er einnig stutt af Sameinuðu Þjóðunum. Í fyrra tóku milljónir manna í 128 löndum þátt og stefnir í enn betri þátttöku í ár.

Á meðan á Stund jarðar stendur slökkva þátttakendur öll nauðsynleg ljós og vekja með því athygli á hnattrænni hlýnun og tengslum orkunotkunar og hlýnunar jarðar. Farfuglaheimilin á Íslandi taka þátt í ár með að slökkva ljósin og vekja þannig athygli gesta á málefninu. Meðan ljósin eru slökkt verður m.a. boðið upp á spil við kertaljós og draugasögur lesnar. Gestgjafar Farfuglaheimilanna efast ekki um að gestirnir hafi gaman af að taka þátt í verkefninu og hugsi um umhverfið, ekki bara á Stund jarðar heldur einnig í daglegu lífi bæði heima og að heiman. Prýðilega er staðið að umhverfisstarfi á heimilunum og sem dæmi um umhverfisfræðslu Farfugla fá allir gestir sem leigja bíl í gegnum Farfugla leiðbeiningar um vistakstur og græn ráð til ferðalanga er að finna á vefsíðu Farfugla www.hostel.is. Í ár  er stund jarðar 26. mars kl. 20:30-21:30

Farfuglar vona að sem flestir taki verkefnið upp á sína arma og hvetja alla til að taka þátt.