Fara í efni

Farfuglaheimilið í Laugardal meðal þeirra umhverfisvænustu í heimi

Farfuglaheimili Laugardal
Farfuglaheimili Laugardal

Vefsíðan www.gadling.com hefur útnefnt Farfuglaheimilið í Laugardal í Reykjavík sem eitt af 10 umhverfisvænustu farfuglaheimilum í heimi. Rík umhverfismeðvitund sé ráðandi í rekstri heimilisins, það sé staðsett við hlið sundlaugarinnar í Laugardal og stutt í margar náttúruperlur.

Tekið er fram að farfuglaheimilið leggi mikla áherslu á endurvinnslu, orkusparnað, bjóði morgunverð úr lífrænt ræktuðu hráefni úr grenndinni og selji drykki sem eiga uppruna sinn í „fair-trade“ viðskiptum. Þá geti gestir á heimilinu fengið upplýsingar um græna um „græna kosti“ í ferðamennsku.