Fara í efni

Fækkun gistinátta í mars

Gisting mars 08
Gisting mars 08

Gistinætur á hótelum í mars síðastliðnum voru 77.500 en voru 88.100 í sama mánuði árið 2007, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fækkaði því um rúm 12% milli ára á landinu öllu og var Norðurland eina landssvæðið þar sem þeim fjölgaði.

Mest er fækkunin á Austurlandi (-22%), samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða (-21%) og Suðurlandi (-20%). Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 64.300 í 56.900 eða um tæp 12%. Gistinóttum fjölgaði í mars á Norðurlandi um rúm 16% á milli ára, úr 4.600 í 5.400. Fjölgun gistinátta á hótelum á Norðurlandi í mars má bæði rekja til Íslendinga (16%) og útlendinga (20%). Fækkun gistinátta á öðrum landsvæðum milli ára má bæði rekja til Íslendinga (-15%) og útlendinga (-11%).

3% fjölgun á fyrsta ársfjórðungi
Gistinætur á hótelum fyrstu þrjá mánuði ársins voru 211.778 en voru 204.755 á sama tímabili árið 2007, sem er 3% fjölgun.  Fjölgun varð á Norðurlandi um rúm 10% og  á höfuðborgarsvæðinu um rúm 9% milli ára. Fækkun varð á öllum öðrum landsvæðum mest  á Austurlandi eða 24%, á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um rúmlega 18% og á Suðurlandi ríflega 15%.