Fara í efni

Erlendum gestum fjölgar um tæp 7% fyrstu 6 mánuði ársins

Fjölgun
Fjölgun

 

Þróun á mörkuðum

Frá áramótum hefur orðið umtalsverð flgun frá Mið-Evrópu, Hollendingum hefur flgað um 40%, Frökkum um 24% og Þjóðverjum um 18%. Norðurlandabúum flgar um tæp 5% og munar þar mest um flgun Finna. Bretum fækkar hins vegar um 4% og gestum frá Bandaríkjunum enn meir eða um 23%. Að stórum hluta má rekja fækkun Bandaríkjamanna til þess að Flugleiðir hættu flugi til Baltimore um miðjan janúar 2008.  Kanadamönnun hefur hins vegar flgað verulega, sem kemur ekki á óvart, en Toronto var bætt við sem áfangastað í maí 2008. Brottförum annarra landa Evrópu og fjarmarkaða flgar töluvert eða um 22%, en þar munar mest um Pólverja.

 

Þrátt fyrir hátt olíuverð og efnahagssveiflur á okkar helstu markaðssvæðum er búist við aukningu ferðamanna í sumar. Búist er við nokkurri flgun gesta frá Mið-Evrópu, enda um aukið sætaframboð að ræða og sterka Evru. Erfitt er að spá fyrir um flda gesta á heildina litið, enda hefur sjaldan verið eins mikið um bókanir á síðustu stundu og nú í sumar. Þó svo hljóðið sé mismunandi í ferðaþjónustuaðilum búast flestir við viðunandi útkomu í sumar.

 

Í meðfylgjandi skjali má sjá fjölda gesta skipt eftir markaðssvæðum, þjóðerni og mánuðum