Fara í efni

Erla Sigurðardóttir ráðin til Ferðamálastofu

Erla SigurðardóttirFerðamálastofa hefur ráðið Erlu Sigurðardóttur í starf sérfræðings sem auglýst var í vor. Margir hæfir einstaklingar sóttu um starfið og alls bárust okkur um 130 umsóknir.

Erla er með BS próf í Hótel og veitingastjórnun frá University of Wisconsin STOUT, diplóma í opinberri stjórnsýslu og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands. Erla hefur starfað á hótelum víða um land og veitt Hvalasafninu á Húsavík forstöðu. Þá starfaði hún um tíma sem verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands með áherslu á ferðaþjónustu. Síðastliðin tvö ár hefur Erla starfað sem fræðslu- og menningarfulltrúi fyrir sveitafélagið Norðurþing.

Erla kemur til starfa 4. september og verður staðsett á skrifstofunni á Akureyri.