Fara í efni

Daniel Yuan Ming Hu / Spectacular Iceland

Ferðaskrifstofuleyfi Daniel Yuan Ming Hu með skráð hjáheiti Spectacular Iceland, kt. 2606844779, Laufengi 11, 112 Reykjavík, hefur verið fellt úr gildi þar sem ferðaskrifstofurekstri hefur verið hætt. Starfsemin var tryggingaskyld vegna sölu pakkaferðar og samtengdrar ferðatilhögunar samkvæmt VII. kafla laga nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun.

Samkvæmt 25. gr. er tryggingunni ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.
Með vísan til 27. gr. er hér með skorað á þá viðskiptavini Daniel Yuan Ming Hu, sem telja sig eiga kröfu í tryggingarféð, sbr. ofangreint, að leggja fram skriflegar kröfulýsingu fyrir 11. október nk.

Kröfulýsingu skal senda inn rafrænt í gegnum þjónustugátt á vefsíðu Ferðamálastofu. Þar er að finna sérstakt form sem þarf að fylla út. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, kvittanir fyrir greiðslu eða millifærslu. Ef kröfuhafi hefur ekki íslenska kennitölu skal senda formlega kröfu á krofur@ferdamalastofa.is. Nánari upplýsingar á ensku má finna á vef Ferðamálastofu.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 535 5500, á netspjalli stofnunarinnar eða á netfanginu krofur@ferdamalastofa.is.

Ferðamálastofa