Fara í efni

Elías Bj. Gíslason settur ferðamálastjóri

Elías Bj. GíslasonRáðherra ferðamála hefur falið Elíasi Bj. Gíslasyni að gegna starfi ferðamálastjóra til áramóta en Ólöf Ýrr Atladóttir er komin í námsleyfi. Embættið hefur verið auglýst laust til umsóknar með skipunartíma frá 1. janúar 2018.

Elías hefur starfað hjá Ferðamálastofu frá árinu 1998, síðast sem forstöðumaður gæða- og þróunarsviðs. Mun hann gegna því starfi samhliða. Elías var einnig settur ferðamálastjóri í fjóra mánuði árið 2014.

Hann er með MBA gráðu frá Florida Institute of Technology og BSc gráðu í viðskiptafræði með áherslu á hótelstjórn frá Webber College í Bandaríkjunum. Þá er Elías einnig útskrifaður sem matreiðslumaður frá Hótel og veitingaskóla Íslands. Hann á að baki fjölþætta reynslu innan ferðaþjónustunnar, m.a. sem hótelstjóri á Hótel KEA og Edduhótelunum og sem atvinnu- og ferðamálafulltrúi í Vestmannaeyjum. Á árum áður starfaði Elías einnig hér heima og erlendis sem matreiðslumaður.