Fara í efni

Eldgosið - upplýsingaefni á ensku

Gos 2010
Gos 2010

Útbúin hefur verið sameiginleg fréttatilkynning á ensku frá utanríkisráðuneytinu, Útflutningsráði og Ferðamálastofu vegna gossins undir Eyjafjallajökli. Í henni er leitast við að draga fram helstu staðreyndir varðandi gosið, ekki síst með ferðafólk í huga.

Eins og vill gerast hefur nokkuð borið á villandi og misvísandi fréttum í erlendum fjölmiðlum þar sem hlutir eru gjarnan settir fram í æsifréttastíl. Með sameiginlegri tilkynningu er leitast við að koma á framfæri samræmdum skilaboðum frá íslenskum yfirvöldum vegna gossins og áhrifa þess á ferðalög og daglegt líf hérlendis. Í fréttinni eru einnig tengingar inn á helstu upplýsingasíður sem fólk þarf á að halda í tilfellum sem þessu, svo sem upplýsingasíður flugfélaganna vegna gosins, Almannavarnir og Veðurstofuna.

Tilkynningin er aðgengileg á landkynningarvef Ferðamálastofu visiticeland.com, vef Útflutningsráðs www.icetrade.is, á vef utanríkisráðuneytisins www.mfa.is, íslenskra stjórnvalda www.iceland.org og á heimasíðum sendiráða Íslands erlendis. Ferðamálastofa beinir því einnig til ferðaþjónustufyrirtækja að koma tilkynningunni á framfæri við samstarfsaðila sína erlendis.