Fara í efni

"Ég bókaði allt sjálfur og það var mikið ódýrara... - Upptaka

 

Góð mæting var á fund Ferðamálastofu í morgun þar sem kynntar voru væntanlegar breytingar á lögum um starfsumhverfi ferðaþjónustuaðila. Yfirskriftin var: "Ég bókaði allt sjálfur og það var mikið ódýrara...“ Hægt var að fylgjast með beinni útsendingu hér á vefnum og er upptaka orðin aðgengileg.

Á fundinum kom fram að breytingarnar munu hafa töluverð áhrif á starfsumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja og mikilvægt að fyrirtækin fari sem fyrst að skoða sín mál. 

Hér má kynna sér nánari upplýsingar um nýja löggjöf

  • Lög um Ferðamálastofu nr. 96/2018
  • Lög um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018

Upptaka frá fundinum

Hægt er var fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og eru upptökur aðgengilegar hér að neðan. 

    

Inngangur og kynning - Helena Þ. Karlsdóttir

Öryggisáætlanir - Hólmgeir Þorsteinsson

    

Ný hugtök - Erla Sigurðardóttir

Aukin neytendavernd og hagnýt atriði - Helena Þ. Karlsdóttir