Fara í efni

Efni frá DMP fundum

Nú er aðgengilegt hér á vefnum efni frá kynningarfundum um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans/DMP), sem Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála stóðu fyrir um allt land og lauk fyrr í mánuðinum.

Stærsta samhæfða þróunarverkefnið

Verkefnið er eitt stærsta samhæfða þróunarverkefnið sem ráðist hefur hér á landi, eitt af forgangsverkefnum Ferðamálastofu og eitt viðamesta áhersluverkefni Vegvísis/Stjórnstöðvar ferðamála. Á fundunum kynntu Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem skoski ráðgjafinn Tom Buncle fór ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Nánari upplýsingar um stefnumarkandi stjórnunaráætlanir í PDF-skjali

Efni frá fundunum er aðgengilegt hér að neðan.

Inngangur - Óskar Jósefsson

Kynning verkefnins - Anna Katrín Einarsdóttir

Erindi sem PDF

Eðli, markmið og tilgangur DMP - Tom Buncle

Erindi sem PDF

Tímalína og fjármögnun - Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir 

Erindi sem PDF

 

Nánari upplýsingar

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, verkefnastjóri svæðisbundinnar þróunar
hrafnhildur@ferdamaalstofa.is