Fara í efni

Vinna við aðgerðaáætlun ferðaþjónustunnar hafin

Í frétt á vef menningar og viðskiptaráðuneytisins kemur fram að Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra hefur skipað sjö starfshópa sem falið er að vinna tillögur að aðgerðaáætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030. Gert er ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar um á vorþingi 2024.

Hóparnir eru:

  1. Sjálfbærni og orkuskipti.
    Formaður: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.
  2. Samkeppnishæfni og verðmætasköpun.
    Formaður: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.
  3. Rannsóknir og nýsköpun.
    Formaður: Már Másson, framkvæmdastjóri Fossfall ráðgjafar.
  4. Uppbygging áfangastaða.
    Formaður: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.
  5. Hæfni og gæði.
    Formaður: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands.
  6. Heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónusta.
    Formaður: Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, markaðs-, og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.
  7. Menningartengd ferðaþjónusta.
    Formaður: Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu.

Hver starfshópur er skipaður sjö til níu sérfróðum aðilum, auk formanns. Miðað er við að hóparnir hafi víðtækt samráð við ferðaþjónustuna og aðra haghafa og skili fyrstu drögum að aðgerðum fyrir 1. október 2023. Þær tillögur fara í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Hóparnir skila lokatillögum til stýrihóps fyrir 15. desember 2023 sem samræmir aðgerðir í heildstæða aðgerðaáætlun og skilar til ráðherra.

Leitt af stýrihópi

Verkefnið í heild sinni er leitt af stýrihópi á vegum menningar- og viðskiptaráðuneytis sem formenn starfshópanna sjö eiga sæti í, ásamt ferðamálastjóra, framkvæmdastjóra SAF, fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, fulltrúum menningar- og viðskiptaráðuneytisins og formanni ferðamálaráðs. Utanaðkomandi ráðgjafar frá RATA og Deloitte eru til stuðnings við verkefnið í heild. Stýrihópur samræmir og vinnur nánar úr þeim tillögum sem koma frá starfshópunum.

Opnir umræðu- og kynningarfundir í öllum landshlutum 

Haldnir verða opnir umræðu- og kynningarfundir um vinnuna í öllum landshlutum í haust. Þá er fyrirhugað að opna vefsíðu þar sem finna má upplýsingar og gögn sem tengjast Ferðaþjónustu til 2030. Þar munu áhugasamir jafnframt geta komið sínum ábendingum á framfæri.

Ferðaþjónustustefna til 2030

Í uppfærðum stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030 eru 12 áherslur sem deilast á lykilstoðirnar fjórar; efnahag, samfélag, umhverfi og gesti. Aðgerðaáætlunin mun fylgja eftir þeirri framtíðarsýn, markmiðum og áherslum sem koma fram í ferðaþjónustustefnu til 2030.

Ferðaþjónustan er ein af stærstu útflutningsgreinum landsins og mikilvægur drifkraftur hagvaxtar. Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni efnahagslegs og samfélagslegs jafnvægis. Í því felst að ferðaþjónustan sé arðsöm og samkeppnishæf í sátt við land og þjóð.

Áfram verður lögð áhersla á öflun áreiðanlegra gagna og innviðauppbyggingu ásamt aðgerðum sem miða að því að dreifa ferðamönnum víðar um landið og yfir allt árið. Einnig að auka öryggi, stuðla að öruggri ferðahegðun og jákvæðri upplifun gesta samhliða því að leita leiða til að bæta rekstrarskilyrði greinarinnar hér á landi.