Fara í efni

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2023 veitt vegna uppbyggingar við Brimketil

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir árið 2023 hlýtur Reykjanes jarðvangur fyrir uppbyggingu við Brimketil skammt vestan Grindavíkur. Tilkynnt var um verðlaunin í dag.

Um er að ræða áhugaverðan ferðamannastað á Suðurnesjum þar sem hægt er að sjá þann kraft sem býr í Norður-Atlantshafinu þegar brimið skellur á klettunum. Öldugangur og ytra álag hefur smátt og smátt mótað bolla og katla í basaltið. Þarna má sjá Brimketil sem er sérkennilegur ketill í sjávarborðinu sem minnir helst á heitan pott á sólríkum degi. Áður gat skapast mikil hætta þegar fólk fór út á úfið hraunið sem er sprungið og gróft með úfnum jöðrum og yfirborði.

Áhersla á aukið öryggi og bætt aðgengi

Um er að ræða framkvæmdir til að bæta öryggi og aðgengi ferðamanna. Nauðsynlegt þótti að skilgreina aðkomu að áningarstaðnum ásamt því að útbúa útsýnispall og stíga sem falla að landslaginu.

Reykjanes jarðvangur hefur hlotið fimm styrki frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Í upphafi var unnið deiliskipulag fyrir svæðið umhverfis Brimketil þar sem lögð var áhersla á bætt og öruggara aðgengi. Í framhaldi var útbúinn útsýnispallur, bílastæði afmarkað, göngustígur mótaður ásamt skiltum með upplýsingum um svæðið. Nú síðast var farið í að stækka útsýnispallinn ásamt því að að gera hann öruggari.

Framkvæmdaverkefnin ríma vel við áherslur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er varða öryggi og bætt aðgengi að ferðamannastað.

Umhverfisverðlaun veitt frá árinu 1995

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu eru hugsuð sem hvatning og áminning til þeirra sem koma að ferðaþjónustu um að huga vel að umhverfinu í allri skipulagningu og framkvæmd.

Þau hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 29. sinn sem þau eru afhent. Verðlaunin eru nú í áttunda sinn veitt fyrir verkefni sem hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða og voru til fyrirmyndar. Það þýðir að verkefninu sé lokið, reglum framkvæmdasjóðsins fylgt og það hafi verið í samræmi umhverfisstefnu Ferðamálstofu og áherslur Framkvæmdasjóðsins um sjálfbæra þróun, gæði hönnunar og skipulags. Fyrri verðlaunahafar