Fara í efni

Skráning á Iceland Travel Tec - Spennandi fyrirlestrar um fjölbreytt málefni

Iceland Travel Tech - Nordic Edition fer fram 3. júní, frá kl.13-16, bæði rafrænt og í raunheimum. Ferðamálastofa og Íslenski Ferðaklasinn hafa fengið til liðs við sig frábæra fyrirlesara sem munu fjalla um allt frá notkun Tik Tok í markaðsstarfi til bálkakeðja og hvernig þær geta aukið traust ferðamanna til áfangastaða.


Meðal fyrirlesara verða Ása Steinarsdóttir sem veitir fyrirtækjum um víða veröld ráðgjöf um notkun samfélagsmiðla í markaðssetningu, Anthony Day frá IBM, Robyn Phaedra Mitchell frá Hybrid Hospitality, Haukur Birgisson frá Godo og Filip Gielda frá Visit Greenland sem mun segja frá nýrri norrænni upplýsingaveitu fyrir ferðaþjónustuaðila. Þá mun Tryggvi Hjaltason frá CCP einnig fjalla um upplifunarhönnun og hvað ferðaþjónustan getur lært af tölvuleikjahönnuðum - og öfugt.

Frábær dagskrá sem er öllum að kostnaðarlausu en skráning er nauðsynleg. Dagskrána má sjá hér að neðan.

Skráning á Iceland Travel Tech

Dagskrá Iceland  Travel Tec 2021