Fara í efni

Ráðherra frestar fyrstu gjalddögum Ferðaábyrgðasjóðs

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, hefur ákveðið að fresta fyrstu gjalddögum Ferðaábyrgðasjóðs til að koma til móts við íslenska ferðaþjónustu vegna áhrifa COVID-19 faraldursins. Fyrsti gjalddaginn verður 1. desember 2021.

Sjóðurinn er í vörslu Ferðamálastofu og er hlutverk hans að veita ferðaskrifstofum lán til að endurgreiða viðskiptavinum sínum vegna ferða sem var aflýst eða þær afpantaðar á tímabilinu 12. mars til og með 30. september 2020. Tæplega 60 umsóknir bárust og nema samþykktar umsóknir rétt rúmlega þremur milljörðum króna.

Lántökum ber að endurgreiða sjóðnum innan sex ára og var fyrirhugað að fyrsti gjalddaginn yrði þann 1. mars 2021. Í ljósi þess að enn eru umsvif ferðaþjónustufyrirtækja óveruleg vegna COVID-19 heimsfaraldursins, ákvað ráðherra að fresta gjalddaga á fyrstu afborgunum. 

„Tilgangur sjóðsins er að aðstoða íslensk ferðaþjónustufyrirtæki við að standa við skuldbindingar sínar og styrkja viðspyrnu þeirra að loknum kórónuveirufaraldrinum. Því er ljóst að innheimtuaðgerðir vegna gjalddaga 1. mars gætu leitt til gjaldþrota og myndi vinna gegn markmiðum sjóðsins. Hagsmunum ríkissjóðs og ferðaskrifstofa er því best borgið með því að gjalddaganum verði frestað til 1. desember,“ segir Þórdís Kolbrún í frétt á vef ráuneytisins.