Fara í efni

Opnað inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi

Nýjustu fréttir um stöðuna:

Athugið að á visitreykjanes.is er haldið utan um allar lykilupplýsingar á einum stað. Þar kemur t.d. fram ef breytingar verða á aðkomuleiðum eða ef loka þarf fyrir aðgengi tímabundið.

-----------

Opnað hefur verið fyrir aðgengi inn á svæðið við eldgosið sem hófst við fjallið Litla Hrút á Reykjanesskaga síðgegis mánudaginn 10. júlí. Athugið að opnað hefur verið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi en ekki frá öðrum vegum eða vegaslóðum.

  • Bílum skal lagt á merktum stæðum við Suðurstrandarveg en ekki í vegkanti Suðurstrandarvegar.
  • Akstur utan vega er bannaður.
  • Fjallið Keilir er inn á merktu hættusvæði.
  • Ferðamenn fari að fyrirmælum viðbragðsaðila. 

Hvaða leið skal fara?

Leið upp að gosstöðvunum er það sem viðbragðsaðilar kalla Meradalaleið, sjá kort að neðan. Ganga þarf um 20 km leið fram og til baka. Gönguferðin hentar því alls ekki öllum.

Uppfært hættukort af svæðinu

Mikilvægt er að hafa í huga að gossvæðið er hættulegt svæði þar sem aðstæður geta breyst skyndilega. Lögregla varar fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum vegna gasmengunar. Hætta eykst þegar vind lægir. Þá geta lífshættulegar gastegundir safnast í dældum og geta reynst banvænar. Nýjar gossprungur geta opnast með litlum fyrirvara og glóandi hraun getur fallið úr hraunjaðri og hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram sem erfitt getur verið að forðast á hlaupum.

Göngufók klæði sig eftir veðri, nesti sig og gleymi ekki að hafa næga hleðslu á farsímum. Ekki er tryggt öryggi farsíma á svæðinu.

Þeir gangi að gosstöðvum sem treysta sér til þess, vel búnir og nestaðir. Fylgist með vindátt og fréttaflutningi. Sjá jafnframt upplýsingar á https://safetravel.is/ https://www.almannavarnir.is/ https://www.vedur.is/. Þá má benda á helstu fjölmiðla sem hafa verið með mjög upplýsandi og með góðan fréttaflutning af gosinu.

Spá veðurvaktar um gasdreifingu

Norðlæg átt, 5-10 m/s, 8-13 á morgun. Gasmengunin berst því til suðurs og gæti hennar orðið vart í m.a. Grindavík og á Suðurstandarvegi.
Mun hægari vindur um tíma í nótt. Gasmengun gæti dreifst víða kringum upptakasvæðið í fyrramálið.