Fara í efni

Nýtt starf - Sérfræðingur á rannsóknasvið

Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Ferðamálastofa óskar eftir að ráða töluglöggan, sjálfstæðan og drífandi einstakling í greiningu og miðlun gagna sem tengjast íslenskri ferðaþjónustu. Um er að ræða nýtt og spennandi starf á rannsóknasviði Ferðamálastofu sem hefur það hlutverk að halda utan um opinbera gagnasöfnun og rannsóknir á ferðamálum. Um fullt starf er að ræða. 

Staðan er auglýst án staðsetningar.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Greining á fyrirliggjandi talnaefni, rannsóknaniðurstöðum og úrvinnslu gagna sem tengjast ferðamálum á Íslandi
  • Spá um þróun byggt á fyrirliggjandi gögnum
  • Miðlun þekkingar og upplýsinga
  • Þátttaka í þróun rannsóknasviðs

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði, stærðfræði, tölfræði, verkfræði eða annarri menntun sem nýtist í starfi
  • Greiningarhæfni og næmni fyrir gildi rannsóknaniðurstaðna fyrir starfrækslu íslenskrar ferðaþjónustu
  • Þekking á starfsumhverfi ferðaþjónustunnar og/eða rekstri fyrirtækja æskileg
  • Góð tölvukunnátta og þekking á notkun hugbúnaðar
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðuneytis við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknir og nánanri upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.