Fara í efni

Nýtt fyrirkomulag efli Vakann til framtíðar

Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson

Opnað hefur verið að nýju fyrir umsóknir í Vakann, gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að breyttu fyrirkomulagi úttekta og því ekki tekið á móti nýjum umsóknum.

Skoðunar- og vottunarstofur sjá um úttektir

Helsta breytingin er sú að Ferðamálastofa hefur gengið til samstarfs við nokkrar skoðunar- og vottunarstofur vegna úttekta og býðst umsækjendum svo og núverandi þátttakendum að velja á milli eftirtalinna fyrirtækja:

BSI á Íslandi
iCert
Inspectionem
Vottunarstofan Tún

Aukin ábyrgð og virkni umsækjenda

Nýtt fyrirkomulag felur einnig í sér nýja hugsun þar sem umsækjendur taka aukna ábyrgð og virkari þátt í því að innleiða og viðhalda virku gæða- og umhverfiskerfi í fyrirtæki sínu.

Styttri og hnitmiðaðri viðmið

Á vef Vakans má finna nánari upplýsingar um nýja fyrirkomulagið. Sérstaklega er bent á nýja útgáfu af almennum gæðaviðmiðum sem hafa verið stytt og gerð hnitmiðaðri og eiga nú við báða flokka; gistingu og ferðaþjónustu aðra en gistingu.

Stjörnuflokkun hótela

Loks má geta þess að stjörnuflokkun verður áfram í boði fyrir hótel, en annars konar gistiþjónustu býðst að verða viðurkennt (certified) gistiheimili, viðurkennt hostel, viðurkennt tjaldsvæði o.s.frv.

Efli og styrki Vakann til framtíðar

Það er trú Ferðamálastofu að nýja fyrirkomulagið efli og styrki Vakann til framtíðar og tryggi um leið gæði, öryggi og umhverfisvitund í íslenskri ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar

Við hvetjum alla til að kynna sér málið á vef Vakans en einnig er hægt að hafa samband við Öldu Þrastardóttur alda@ferdamalastofa.is og Áslaugu Briem aslaug@ferdamalastofa.is