Fara í efni

Ný herferð fyrir áfangastaðinn Ísland: The A.U.R.O.R.A.S.

Ný herferð fyrir áfangastaðinn Ísland: The A.U.R.O.R.A.S.

Í dag setti Íslandsstofa í loftið nýja herferð fyrir áfangastaðinn Ísland. Ber hún heitið The A.U.R.O.R.A.S. - The Alliance of Ultra Reliable Observers Ready for Aurora Spotting. Herferðin er öll í gamansömum tón en þar hefur skrautlegur hópur alþjóðlegs áhugafólks valið að koma til Íslands í leit að norðurljósum. Myndbandið er hluti af aðgerðum markaðsverkefnisins Ferðaþjónusta til framtíðar sem Íslandsstofa framkvæmir fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu og fjármagnað er af íslenskum stjórnvöldum. Íslandsstofa hélt kynningarfund fyrr í dag á netinu og er hægt að nálgast upptökuna hér.

Áhersla á Bretland

Einkum var lögð áhersla á að sækja á Bretlandsmarkað að þessu sinni en Bretar eru einn mikilvægasti markhópur íslenskrar ferðaþjónustu, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Þróunin í ár sýnir minnkandi eftirspurn yfir vetrartímabilið en sterkari eftirspurn yfir sumarið. Þessi sveifla undirstrikar mikilvægi þess að viðhalda markvissri nálgun og sýnileika á Bretlandsmarkaði líkt og á öðrum mörkuðum þar sem áhersla er lögð á að kynna Ísland sem heilsársáfangastað. Aðalleikri herferðarinnar er enski leikarinn og grínistinn Joseph Thomas. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Simon Cooper í bresku gamanþáttunum „The Inbetweeners“ og tveimur kvikmyndum sem byggjast á þáttunum. 

 

Ferðaþjónustuaðilar verði duglegir að deila

Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að deila herferðinni á sína tengiliði og í gegnum samfélagsmiðla. Hér að neðan eru upplýsingar um hvernig hægt er að tengja sig við markaðsaðgerðir.

  • Deilið myndbandinu með ykkar tengiliðum
  • Hér má nálgast leikbók með upplýsingum um herferðina
  • Hér er hlekkur á heimasíðu tileinkaðri herferðinni þar sem er að finna myndbandið, upplýsingar um norðurljós og nokkrar laufléttar spurningar til að gerast meðlimur í The A.U.R.O.R.A.S.