Fara í efni

Laust starf - Sérfræðingur á Akureyri

Stokknes, mynd: Íslandsstofa
Stokknes, mynd: Íslandsstofa

Ferðamálastofa - Sérfræðingur á Akureyri

Ferðamálastofa leitar að skipulögðum og drífandi einstaklingi í stöðu sérfræðings á Stjórnsýslusvið stofnunarinnar sem er staðsett á Akureyri. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti við ferðaskipuleggjendur varðandi leyfismál og afgreiðsla þeirra
  • Árlegt endurmat tryggingafjárhæða
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni á sviðinu

Hæfniskröfur 

  • Viðskiptafræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þjónustulund ásamt færni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að forgangsraða verkefnum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð almenn tölvuþekking

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.

Umsóknarfrestur er til 13. júní nk. Viðkomandi einstaklingur þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.06.2022

Nánari upplýsingar veitir

Elín Gróa Karlsdóttir, Fjármálastjóri - elingroa@ferdamalastofa.is - 535-5518

Smelltu hér til að sækja um starfið